Diego Godin, varnarmaður Atletico Madrid varð fyrir meiðslum í sigri liðsins á Bayern Munchen í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Úrúgvæinn kláraði leikinn en hann fann til í vinstri ökklanum.
Nú er komið í ljós að hann skaddaði liðband í ökklanum og verður hann frá í einhvern tíma.
Godin er búinn að spila hvern einasta leik með Atletico á leiktíðinni hingað til.
Athugasemdir