Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 29. september 2016 21:39
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mourinho: Eina vikuna töpum við þrem þá næstu vinnum við þrjá
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, þjálfari Manchester United var kátur eftir 1-0 sigur á Zorya í Evrópudeildinni í kvöld.

Zlatan Ibrahimovic skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik en Zorya gaf ekki mörg færi á sér í leiknum.

„Þetta var erfitt, við hefðum getað skorað í fyrri hálfleik og þetta hefði orðið öðruvísi leikur, við gerðum það hins vegar ekki."

„Þeir héldu skipulagi og voru með marga menn fyrir aftan boltann. Þeir voru svo hættulegir í skyndisóknum. Þetta var erfiður leikur en við þurftum að vinna."

„Þetta er fljótt að breytast, eina vikuna töpum við þrem í röð, þá næstu, vinnum við þrjá í röð," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner