Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 29. september 2016 22:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Sendi kveðju á veiku eiginkonu sína með fagni
Zarate átti tilfinningaríkt augnablik í dag.
Zarate átti tilfinningaríkt augnablik í dag.
Mynd: Getty Images
Mauro Zarate spilaði með Fiorentina gegn Qarabag í dag og skoraði hann tvö mörk í 5-1 sigri.

Zarate fagnaði fyrra marki sínu með að sýna bol sem hann var í undir treyju sinni en þar stóð „Gracias dios Nat, te amo" eða „Takk guð, ég elska þig Nat," en kona hans heitir Natalie.

Argentínumaðurinn var að spila sinn fyrsta leik í einhvern tíma en hann fékk að fara aftur til Argentínu eftir að eiginkona hans greindist með krabbamein og eru skilaboðin því til veiku eiginkonu sinnar.

Hann kom inná þegar rúmur klukkutími var búinn að leiknum og má segja að þetta hafi verið innkoma í lagi.
Athugasemdir
banner
banner