Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. október 2014 22:26
Brynjar Ingi Erluson
Aron spilaði sinn fyrsta leik með AZ eftir meiðsli
Aron Jóhannsson í leik með bandaríska landsliðinu
Aron Jóhannsson í leik með bandaríska landsliðinu
Mynd: Getty Images
Aron Jóhannsson, leikmaður AZ Alkmaar í Hollandi, lék sinn fyrsta leik með félaginu á tímabilinu er liðið vann GVVV Veenendaal með fimm mörkum gegn engu.

Aron hefur ekkert verið með AZ á tímabilinu vegna meiðsla en hann fór í uppskurð eftir HM sem fór fram í Brasilíu í sumar.

Hann lék þar einn leik fyrir hönd bandaríska landsliðsins en hafði verið að glíma við meiðsli í ökkla, nára og tá.

Hann lék með varaliði AZ á dögunum þar sem hann skoraði en hann lék fyrsta klukkutímann í kvöld áður en honum var skipt af velli fyrir Rasmus Elm.
Athugasemdir
banner
banner
banner