Spænski miðvallarleikmaðurinn David Silva fór meiddur af velli eftir einungis 10 mínútur í leik Manchester City og Newcastle sem nú stendur yfir.
Silva lenti í samstuði við Ryan Taylor og meiddist við það á hné. Fór hann skömmu síðar af velli og kom Frakkinn Samir Nasri inn í stað hans.
Silva lenti í samstuði við Ryan Taylor og meiddist við það á hné. Fór hann skömmu síðar af velli og kom Frakkinn Samir Nasri inn í stað hans.
Ljóst er að þetta vekur upp talsverðar áhyggjur á meðal stuðningsmanna City þar sem framundan er stórleikur gegn Manchester United um helgina.
Athugasemdir