Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. október 2014 22:09
Brynjar Ingi Erluson
Drátturinn í enska deildabikarnum: Liverpool slapp vel
Mynd: Getty Images
Dregið var í 8-liða úrslit enska deildabikarsins í kvöld en Bournemouth fær Liverpool í heimsókn.

Niall Quinn og Stuart Pearce voru mættir til þess að draga í 8-liða úrslit enska deildabikarsins í kvöld en það verða áhugaverðir leikir á dagskrá.

Bournemouth fær Liverpool í heimsókn en óhætt er að segja að Liverpool hafi sloppið nokkuð vel.

Tottenham Hotspur mætir Newcastle United í öflugum leik á meðan Chelsea heimsækir Derby County sem átti ótrúlega endurkomu gegn Fulham í gær

Sheffield United og Southampton mætast þá í hörkuleik en leikirnir fara fram þann 15. desember næstkomandi.

8-liða úrslit:

Derby County - Chelsea
Tottenham Hotspur - Newcastle United
Bournemouth - Liverpool
Sheffield United - Southampton
Athugasemdir
banner