Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 29. október 2014 18:00
Magnús Már Einarsson
Kolo Toure: Hef reynt að hjálpa Balotelli
Kolo er hjálpsamur.
Kolo er hjálpsamur.
Mynd: Getty Images
Kolo Toure, varnarmaður Liverpool, segist hafa mikla trú á liðsfélaga sínum Mario Balotelli.

Balotelli skoraði í gær annað mark sitt á tímabilinu en Kolo segist hafa verið duglegur við að styðja hann í markaþurrðinni.

,,Fyrir framherja eru mörk eins og matur. Mario þarf að næra sig með því að skora mörk. Eftir þetta mark mun hann pottþétt bæta við," sagði Toure.

,,Mario er félagi minn og ég hef reynt að hjálpa honum eins og Stevie (Gerrard), stjórinn (Brendan Rodgers) og allir aðrir í búningsklefanum."

,,Við vitum allir að hann er topp leikmaður. Ég segi alltaf við hann 'þú þarft að fara út á völl og sýna að þú ert einn af bestu leikmönnum í heimi."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner