Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 29. október 2014 23:00
Daníel Freyr Jónsson
Myndband: Meiddust við að fagna eins og Ronaldo
Cristiano Ronaldo fagnar - Stórhættulegt fagn?
Cristiano Ronaldo fagnar - Stórhættulegt fagn?
Mynd: Getty Images
Besti leikmaður heims, Cristiano Ronaldo, hefur fengið ófá tækifæri á undanförnum vikum til að fagna mörkum.

Hefur hann undanfarið fagnað mörgum þeirra á sérstakan máta sem enn hefur ekki fengið nafn. Stekkur hann þá upp, lendir og breiðir út armana af miklum krafti.

Þetta virðist ekki hættulegt, en þrátt fyrir það hafa tveir leikmenn í NFL-deildinni meiðst á undanförnum dögum við að herma eftir Portúgalanum.

Lamarr Houston, varnarmaður í liði Chicaco Bears, reif liðband í vövða um í vikunni, á meðan Stephen Tulloch, leikmaður Detroit Lions, meiddist einnig fyrir nokkrum vikum. Sjá má myndbönd af atvikunum hér að neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner