Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 29. október 2014 15:28
Elvar Geir Magnússon
Rooney býst við að spila um helgina
Wayne Rooney og Ander Herrera.
Wayne Rooney og Ander Herrera.
Mynd: Getty Images
Guardian greinir frá því að Louis van Gaal sé að skipuleggja leik Manchester United gegn Manchester City á sunnudag með það í huga að Wayne Rooney verði leikfær.

Rooney er fyrirliði United en hann er búinn að afplána þriggja leikja bann. Hann meiddist á æfingu í upphafi vikunnar en er bjartsýnn á að geta spilað um helgina.

Rooney er með ellefu mörk að baki þegar þessi tvö lið mætast svo það yrði ansi sterkt fyrir Van Gaal og félaga ef hann er leikfær.

United gerði 1-1 jafntefli við Chelsea um liðna helgi en City tapaði fyrir West Ham. City hefur verið afar ósannfærandi að undanförnu og tapaði til að mynda 2-0 forystu gegn CSKA Moskvu niður i 2-2 jafntefli í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner