Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 29. nóvember 2015 15:25
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Liverpool og Swansea: Coutinho ekki klár
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho er ekki orðinn klár í slaginn fyrir leik Liverpool gegn Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum hans í Swansea.

Gylfi er í byrjunarliðinu og spilar á miðjunni ásamt Ki Sung-Yueng og Leon Britton.

Miðjumenn gestanna mæta sterkri miðju heimamanna þar sem Emre Can og James Milner eru djúpir, með Jordon Ibe, Adam Lallana og Roberto Firmino framar á vellinum fyrir aftan Christian Benteke. Daniel Sturridge er á bekknum.

Gylfi og félagar eru fjórum stigum frá fallsæti eftir erfiða byrjun á tímabilinu á meðan Liverpool hefur verið að taka við sér frá komu Jürgen Klopp og getur stokkið í sjötta sæti deildarinnar með sigri.

Andre Ayew og Eder eru fremstu menn Swansea í leiknum og er Bafetimbi Gomis á bekknum.

Liverpool: Mignolet; Clyne, Skrtel, Lovren, Moreno; Can, Milner; Lallana, Ibe, Firmino; Benteke

Swansea: Fabianski; Naughton, Bartley, Williams, Taylor; Britton, Ki Sung-Yueng, Sigurdsson, Routledge; Ayew, Éder
Athugasemdir
banner
banner