sun 29. nóvember 2015 12:29
Ívan Guðjón Baldursson
Fær sér húðflúr á hausinn vegna markamets Vardy
Mynd: Getty Images
Twitter notandinn @KieranDAL_ kom með yfirlýsingu fyrr í nóvember um að hann myndi fá sér húðflúr á hausinn ef Jamie Vardy, sóknarmaður Leicester City, myndi bæta markamet Ruud van Nistelrooy.

Vardy bætti met Nistelrooy í gær og það er öllum ljóst að internetið gleymir ekki, þannig að þessi tiltekni tístari getur líklega ekki farið á bak orða sinna án þess fólk taki eftir því.

„Ef Jamie Vardy bætir met Ruud van Nistelrooy mun ég fá mér 'chat shit get banged' húðflúr á hausinn," skrifaði Kieran á Twitter.

Vardy gerði chat shit get banged línuna fræga, en hann skrifaði hana í færslu á Facebook fyrir fjórum árum þegar hann var enn að spila í utandeild.

Persónuleiki Vardy hefur gert það að verkum að hann er álitinn goðsögn af mörgum knattspyrnuaðdáendum og það hjálpar eflaust til að hann leikur fyrir lítið knattspyrnufélag sem er spútnik lið tímabilsins á Englandi.

Tíst Kieran hefur fengið gríðarlega mikla athygli og hefur því verið endurtíst hátt upp í sex þúsund sinnum. Hér fyrir neðan má sjá upprunalega tístið ásamt tveimur öðrum frá veðmálafyrirtækjunum William Hill Betting og Paddy Power.









Athugasemdir
banner
banner
banner