Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. nóvember 2015 09:00
Arnar Geir Halldórsson
Hvetur Zlatan til að koma til Englands
Magnaður
Magnaður
Mynd: Getty Images
Sænski varnarmaðurinn Jonas Olsson hvetur landa sinn, Zlatan Ibrahimovic, til að koma í ensku úrvalsdeildina.

Zlatan gaf það í skyn á dögunum að það væri orðið of seint fyrir hann að spila í ensku úrvalsdeildinni en Olsson er ekki viss um það.

„Hann er ennþá á toppnum. Hann er besti leikmaður sem ég hef mætt og ég vona innilega að hann komi til Englands."

„Þegar Zlatan er í gírnum er hann hæfileikaríkasti leikmaður heims."
segir Olsson.

Olsson leikur með WBA og hefur gert undanfarin sjö ár. Hann segir Zlatan enn hafa margt að sanna í Englandi.

„Hann hefur unnið með Mourinho áður en England er eini staðurinn í heiminum þar sem Zlatan er ekki algjörlega metinn að verðleikum."

„Ég vil meina að hann geti spilað fyrir hvaða lið sem er í ensku úrvalsdeildinni. Hann er ennþá það góður."



Athugasemdir
banner
banner
banner