sun 29. nóvember 2015 14:24
Ívan Guðjón Baldursson
Mourinho: Vorum með stjórn á leiknum
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho er himinlifandi með það sem hann telur vera bestu frammistöðu Chelsea á tímabilinu, en liðið gerði markalaust jafntefli við Tottenham rétt í þessu.

Mourinho er svekktur með að hafa aðeins fengið stig úr leiknum þar sem hann telur sína menn hafa verið með stjórn á leiknum.

„Ég er meira en ánægður með frammistöðuna, ég er mjög ánægður með hvernig liðsheildin virkaði í dag," sagði Mourinho.

„Þetta var besta frammistaða Chelsea á tímabilinu gegn hættulegum andstæðingum.

„Við vorum með stjórn á leiknum og fengum bestu færin, liðið mitt á skilið meira en stig úr þessum leik."

Athugasemdir
banner
banner