Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 29. nóvember 2015 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Neymar vill lengri samning við Barcelona
Öflugur
Öflugur
Mynd: Getty Images
Brasilíski galdramaðurinn Neymar hefur engan áhuga á að yfirgefa Barcelona í nánustu framtíð.

Hann var orðaður við brottför frá spænska stórveldinu síðasta sumar en hefur spilað frábærlega fyrir Barcelona á þessari leiktíð.

Neymar er með samning til 2018 en hann vonast til að framlengja samning sinn við félagið fljótlega.

„Ég á enn nokkur ár eftir af samningnum en ég er í viðræðum um nýjan samning. Það er það sem ég vil gera", sagði Neymar eftir sigurinn á Real Sociedad í gær.

„Ég er mjög ánægður með það sem liðið er að gera þessa dagana. Við erum að spila frábærlega. Ég vil hjálpa liðsfélögum mínum með því að skora fleiri mörk og líka leggja upp mörk", sagði Brasilíumaðurinn einnig.
Athugasemdir
banner
banner
banner