sun 29. nóvember 2015 08:30
Arnar Geir Halldórsson
Sammer: Thomas Muller er gimsteinn
Gimsteinn
Gimsteinn
Mynd: Getty Images
Matthias Sammer, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern Munchen, hrósar Thomas Muller í hástert.

Muller hefur skorað 13 mörk í 14 leikjum í Bundesligunni í vetur og hefur jafnað sinn besta árangur í markaskorun þó tímabilið sé ekki einu sinni hálfnað.

„Thomas er algjörlega ómissandi. Hann er fyrirmynd allra hjá Bayern Munchen. Hann er maðurinn sem allir bera sig saman við."

„Hann veit hvað Bayern þýðir og veit fyrir hvað þetta félag stendur. Hann hefur mikið sjálfstraust en er um leið mjög auðmjúkur."

„Mörg lið myndu elska að hafa leikmann eins og hann í sínu liði. Hann er algjör gimsteinn",
segir Sammer.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner