Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 29. nóvember 2015 10:00
Arnar Geir Halldórsson
Vertonghen: Notum Evrópudeildina ekki sem afsökun
Engin þreyta
Engin þreyta
Mynd: Getty Images
Jan Vertonghen hefur ekki áhyggjur af því að leikur liðsins í Evrópudeildinni síðastliðinn fimmtudag muni sitja í leikmönnum liðsins þegar Tottenham mætir Chelsea í dag í ensku úrvalsdeildinni.

Tottenham vann 1-0 sigur á Qarabag Azerbaijan á fimmtudagskvöld og eyddi öllum föstudeginum í að ferðast heim til Lundúna.

„Við gætum notað afsakanir og sagt að við höfum bara fengið tveggja daga hvíld eftir Evrópudeildina en við erum ekki svoleiðis lið.”

„Við munum mæta tilbúnir til leiks í þennan Lundúnarslag. Stuðningsmennirnir munu hjálpa okkur og það verður auðvelt að gíra sig upp fyrir þennan leik”,
segir Vertonghen.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner