Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
   mið 29. nóvember 2017 11:35
Elvar Geir Magnússon
Pardew nýr stjóri West Brom (Staðfest)
Pardew er mættur til West Brom.
Pardew er mættur til West Brom.
Mynd: Getty Images
Alan Pardew hefur verið ráðinn nýr stjóri West Brom. Pardew er fyrrum stjóri Newcastle og Crystal Palace.

West Brom rak Tony Pulis þann 20. nóvember eftir að liðið fór í gegnum 20 úrvalsdeildarleiki án þess að fagna sigri og var liðið stigi fyrir ofan fallsæti.

Pardew er 56 ára og hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn frá Palace í desember 2016.

Hann hefur skrifað undir samning við West Brom til loka tímabils 2019-20 og er sjötti stjóri félagsins síðan 2011.

„Ég er hæstánægður með að fá þetta tækifæri frá Albion og hlakka til að vinna með hópi sem að mínu mati er mjög hæfileikaríkur," segir Pardew.

„Áskorunin felst í því að sækja úrslitin sem þurfa til að toga okkur upp töfluna."

Fyrsti leikur Pardew við stjórnvölinn verður deildarleikur gegn Palace á laugardaginn. Svo koma útileikir gegn Liverpool og Swansea áður en WBA leikur gegn Manchester United á heimavelli.

Gary Megson stýrði West Brom til bráðabirgða eftir að Tony Pulis var rekinn en hann hefur nú yfirgefið félagið. Megson var aðstoðarmaður Pulis.

Pardew hefur einnig stýrt Reading, West Ham, Charlton og Southampton á 18 ára stjóraferli. Hann tapaði tvisvar í úrslitum FA-bikarsins sem stjóri.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 26 5 5 88 28 +60 83
2 Man City 35 25 7 3 87 33 +54 82
3 Liverpool 36 23 9 4 81 38 +43 78
4 Aston Villa 36 20 7 9 73 53 +20 67
5 Tottenham 35 18 6 11 69 58 +11 60
6 Newcastle 35 17 5 13 78 56 +22 56
7 Chelsea 35 15 9 11 70 59 +11 54
8 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
9 West Ham 36 13 10 13 56 70 -14 49
10 Bournemouth 36 13 9 14 52 63 -11 48
11 Brighton 35 12 11 12 53 57 -4 47
12 Wolves 36 13 7 16 49 60 -11 46
13 Fulham 36 12 8 16 51 55 -4 44
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Everton 36 12 9 15 38 49 -11 37
16 Brentford 36 9 9 18 52 60 -8 36
17 Nott. Forest 36 8 9 19 45 63 -18 29
18 Luton 36 6 8 22 49 78 -29 26
19 Burnley 36 5 9 22 39 74 -35 24
20 Sheffield Utd 36 3 7 26 35 100 -65 16
Athugasemdir
banner
banner