Sam Allardyce hefur verið ráðinn stjóri Everton. Sam mun fylgjast með heimaleiknum gegn West Ham í kvöld úr stúkunni áður en hann tekur formlega til starfa.
Stóri Sam hefur verið í fríi í Dubai en hann mætti til Englands í morgun til að skrifa undir samninginn hjá Everton. Sam hefur komið víða við á ferlinum en hann stýrði síðast Crystal Palace á síðasta tímabili.
Ronald Koeman var rekinn frá Everton fyrir rúmum mánuði og David Unsworth hefur stýrt liðinu síðan þá. Unsworth stýrir sínum síðasta leik í kvöld áður en Sam tekur við.
Stóri Sam hefur verið í fríi í Dubai en hann mætti til Englands í morgun til að skrifa undir samninginn hjá Everton. Sam hefur komið víða við á ferlinum en hann stýrði síðast Crystal Palace á síðasta tímabili.
Ronald Koeman var rekinn frá Everton fyrir rúmum mánuði og David Unsworth hefur stýrt liðinu síðan þá. Unsworth stýrir sínum síðasta leik í kvöld áður en Sam tekur við.
„Ég vil gefa honum stuðninginn sem hann þarf. Hann getur náð eins langt og hann vill," sagði Farhad Moshiri, eigandi Everton, um Sam.
Sammy Lee, fyrrum leikmaður og aðstoðarstjóri Liverpool, kemur með stóra Sam til Everton en þeir hafa áður unnið saman hjá Bolton, Crystal Palace og enska landsliðinu.
Unsworth mun fara aftur til fyrri starfa sem þjálfari U23 ára liðs Everton en auk þess verður harðjaxlinn Duncan Ferguson áfram í þjálfarateyminu.
Þá ætlar stóri Sam að fá Craig Shakespeare til að vera einnig sér til aðstoðar. Shakespeare var rekinn frá Leicester á dögunum en hann var aðstoðarmaður Sam í þann stutta tíma sem hann stýrði enska landsliðinu.
Upphaflega vildi Everton gera samning við Sam út tímabilið en þá slitnaði upp úr viðræðum. Talið er að samningur hans við félagið sé nú til lengri tíma.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Arsenal | 28 | 20 | 4 | 4 | 70 | 24 | +46 | 64 |
2 | Liverpool | 28 | 19 | 7 | 2 | 65 | 26 | +39 | 64 |
3 | Man City | 28 | 19 | 6 | 3 | 63 | 28 | +35 | 63 |
4 | Aston Villa | 29 | 17 | 5 | 7 | 60 | 42 | +18 | 56 |
5 | Tottenham | 28 | 16 | 5 | 7 | 59 | 42 | +17 | 53 |
6 | Man Utd | 28 | 15 | 2 | 11 | 39 | 39 | 0 | 47 |
7 | West Ham | 29 | 12 | 8 | 9 | 46 | 50 | -4 | 44 |
8 | Brighton | 28 | 11 | 9 | 8 | 50 | 44 | +6 | 42 |
9 | Wolves | 28 | 12 | 5 | 11 | 42 | 44 | -2 | 41 |
10 | Newcastle | 28 | 12 | 4 | 12 | 59 | 48 | +11 | 40 |
11 | Chelsea | 27 | 11 | 6 | 10 | 47 | 45 | +2 | 39 |
12 | Fulham | 29 | 11 | 5 | 13 | 43 | 44 | -1 | 38 |
13 | Bournemouth | 28 | 9 | 8 | 11 | 41 | 52 | -11 | 35 |
14 | Crystal Palace | 28 | 7 | 8 | 13 | 33 | 48 | -15 | 29 |
15 | Brentford | 29 | 7 | 5 | 17 | 41 | 54 | -13 | 26 |
16 | Everton | 28 | 8 | 7 | 13 | 29 | 39 | -10 | 25 |
17 | Luton | 29 | 5 | 7 | 17 | 42 | 60 | -18 | 22 |
18 | Nott. Forest | 29 | 6 | 7 | 16 | 35 | 51 | -16 | 21 |
19 | Burnley | 29 | 4 | 5 | 20 | 29 | 63 | -34 | 17 |
20 | Sheffield Utd | 28 | 3 | 5 | 20 | 24 | 74 | -50 | 14 |
Athugasemdir