Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. desember 2017 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Aron Einar orðaður við Besiktas
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tyrkneski miðillinn Fotomac heldur því fram að Besiktas hafi áhuga á Aroni Einari Gunnarssyni, miðjumanni Cardiff.

Besiktas gæti misst Oguzhan Özyakup í janúar, en samningur hans rennur út næsta sumar.

Newcastle, West Ham og Crystal Palace hafa meðal annars verið orðuð við Özyakup. Aron Einar á að fylla í hans skarð.

Senol Gunes, þjálfari Besiktas, er sagður hafa miklar mætur á Aroni Einari og er hann sérstaklega hrifinn af frammistöðu hans með íslenska landsliðinu.

Aron er mikill leiðtogi á miðjunni, 28 ára og samningslaus næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner