Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 29. desember 2017 13:00
Magnús Már Einarsson
Hazard búinn að hafna nýjum samningi hjá Chelsea
Eden Hazard.
Eden Hazard.
Mynd: Getty Images
Eden Hazard hefur hafnað nýju samningstilboði frá Chelsea en faðir hans greindi frá þessu í dag.

Hinn 26 ára gamli Hazard er samningsbundinn til 2020 en hann hefur oft verið orðaður við Real Madrid undanfarna mánuði.

Sjálfur hefur hann gefið Real undir fótinn í viðtölum og nú hefur hann hafnað nýju samningstilboði frá Chelsea.

„Það sem ég get greint frá varðandi Eden er að hann hafnaði framlengingu á samningi. Hann gerði það svo hann gæti mögulega fylgt eftir áhuga Real því hann gæti séð sig spila þar," sagði Thierry Hazard faðir Eden.

„Eins og staðan er núna er hins vegar ekkert samband við Real Madrid."
Athugasemdir
banner
banner
banner