Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 29. desember 2017 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Moyes ætlar að kaupa miðjumenn í janúar
Mynd: Getty Images
David Moyes, stjóri West Ham, segir að sig vanti miðjumenn og varnarmenn í janúarglugganum.

Hamrarnir eru einu stigi fyrir ofan fallsvæðið eftir 20 umferðir. Næsti leikur liðsins er fallbaráttuslagur gegn West Brom, 2. janúar.

„Ég fékk ekkert undirbúningstímabil þannig ég hef þurft að nota undanfarnar vikur til að meta leikmannahópinn," sagði Moyes.

„Ég get ekki gefið mönnum tækifæri og beðið í nokkra mánuði eftir að þeir skili árangri, það er ekki í boði.

„Við erum vel settir frammi en okkur vantar miðjumenn, sérstaklega hægra megin. Við munum reyna að finna rétta leikmenn í janúar.

„Okkur vantar líka varnarmenn, það vantar gæði í vörnina."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner