fös 29. desember 2017 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo varar Coutinho við að fara til Barca
Mynd: Getty Images
Brasilíska goðsögnin Ronaldo ráðleggur Philippe Coutinho ekki að fara til Barcelona.

Ronaldo segist ekki bera góðar tilfinningar til félagsins sem hann telur hafa farið illa með sig og samlanda sína.

„Mér leið miklu betur hjá Real Madrid, þrátt fyrir að hafa átt frábært ár í Barcelona. Á endanum var reynsla mín neikvæð, svipað og hjá Neymar," sagði Ronaldo við Esporte Interativo.

„Félagið hefur alltaf átt í vandræðum með brasilíska leikmenn. til dæmis Neymar, Romario og Ronaldinho.

„Coutinho ætti að hugsa sig tvisvar um áður en hann fer til Barca. Félagið fór illa með okkur þrátt fyrir allt okkar framlag."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner