Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 29. desember 2017 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Steven Caulker er án félags
Mynd: Getty Images
QPR hefur leyft varnarmanninum Steven Caulker að yfirgefa félagið á frjálsri sölu.

Caulker hefur aðeins spilað einn deildarleik á tímabilinu en býr yfir mikilli reynslu úr ensku úrvalsdeildinni eftir veru sína hjá Swansea og Cardiff.

Miðvörðurinn á afmæli í dag og er nýorðinn 26 ára gamall. Hann á einn A-landsleik að baki fyrir England og 5 fyrir Bretland, sem hann fór með á Ólympíuleikana 2012.

Caulker hefur spilað fyrir lið á borð við Tottenham, Southampton og Liverpool á ferlinum.

Það er ljóst að mörg lið gætu nýtt sér krafta Caulker, sem var á tíma álitinn meðal efnilegustu leikmanna Englands.




Athugasemdir
banner
banner
banner