Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 29. desember 2017 10:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Sturridge og Walcott til Southampton
Powerade
Samkvæmt slúðrinu í dag munu Theo Walcott og Daniel Sturridge ganga í raðir Southampton.
Samkvæmt slúðrinu í dag munu Theo Walcott og Daniel Sturridge ganga í raðir Southampton.
Mynd: Getty Images
Fer Courtois í markið hjá Real Madrid?
Fer Courtois í markið hjá Real Madrid?
Mynd: Getty Images
Nú er komið að því að fara yfir helsta slúðrið úr ensku götublöðunum en BBC tók það saman.

Southampton vill fá Daniel Sturridge framherja Liverpoool á láni út tímabilið. (Telagraph)

Southampton ætlar líka að nýta 75 milljónirnar sem þeir fengu fyrir söluna á Virgil van Dijk til Liverpool og kaupa Theo Walcott aftur frá Arsenal. (Mirror)

Real Madrid hefur áhuga á að fá Ryan Sessegnon bakvörð Fulham og U19 ára landsliðs Englands. Man Utd og Tottenham fylgjast náið með þessum 17 ára gamla gutta. (AS)

Spænska stórliðið vill líka fá Thibaut Courtois markvörð Chelsea og enska félagið mun vilja selja hann ef hann framlengir ekki samningi sínum við félagið. (Sky Sports

Arsenal undirbýr núna tilboð í alsírska kantmanninn Riyad Mahrez hjá Leicester til að leysa stöðu Alexis Sanchez sem er á förum. (Le Buteur)

Arsene Wenger stjóri Arsenal segir að viðræður um nýjan samning við Jack Wilshere muni fara fram í janúar. (Mail)

Man City vill fá Jonny Evans miðvörð WBA eða spænska miðvörðinn Inigo Martinez frá Real Sociedad í janúar. (Telagraph)

Juventus hefur hafnað 70 milljón punda tilboði Man Utd í argentíska framherjann Paulo Dybala og jafnvel þó enska félagið hafi boðið Henrikh Mkhitaryan upp í kaupverðið. (Sun)

West Ham hefur áhuga á að fá Andre Schurrle framherja Borussia Dortmund á láni í janúar.(Guardian)

David Moyes stjóri West Ham vill líka fá Joe Allen frá Stoke. (Mirror)

Wolfsburg vill fá að kaupa Divock Origi frá Liverpool en sá belgíski hefur spilað með þeim á láni síðan í ágúst. (ESPN)

Stoke hefur óskað eftir því að fá Danny Ings framherja Liverpool á láni en Newcastle, West Ham og WBA berjast líka um hann. (Independent)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner