Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 30. janúar 2015 16:20
Magnús Már Einarsson
Burnley getur ekki selt Ings til Liverpool og fengið hann á láni
Mynd: Getty Images
Burnley hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna áhuga Liverpool á framherjanum Danny Ings.

Ings verður samningslaus í sumar en enskir fjölmiðlar sögðu frá því í dag að Liverpool vilji kaupa leikmanninn og lána hann síðan aftur til Burnley út tímabilið.

Það er eitthvað sem mun ekki gerast því að reglur ensku úrvalsdeildarinnar banna slíkt.

,,Þetta myndi brjóta reglu V7 í ensku úrvalsdeildinni varðandi félagaskipti og þetta getur einfaldlega ekki gerst," sagði Lee Hoos framkvæmdastjóri Burnley.

,,Þetta er í síðasta skipti sem við tjáum okkur um framtíð leikmannsins."
Athugasemdir
banner
banner