KA í fyrstu deild karla hefur fengið enska framherjann, Ben Everson, til liðs við sín en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Everson, sem er 27 ára gamall, þekkir ágætlega til hér á Íslandi en hann hefur leikið með Tindastól, Breiðablik og BÍ/Bolungarvík hér á landi.
Hann lék á síðustu leiktíð með AFC United í Svíþjóð en er kominn aftur til landsins og mun leika í gulu treyjunni.
Hann er væntanlegur á næstu dögum og verður líklega kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Gróttu í Lengjubikarnum sem fer fram á fimmtudaginn.
Hann er með fína tölfræði í fyrstu deildinni en hann hefur samtals leikið þar 30 leiki og gert 17 mörk fyrir Tindastól og BÍ/Bolungarvík.
Athugasemdir