Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 30. mars 2015 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Chicharito: Mjög pirraður og svekktur yfir ástandinu
Mynd: Getty Images
Javier Hernandez, betur þekktur sem Chicharito, birti myndband þar sem hann talar um vanlíðan sína hjá Real Madrid.

Chicharito er mexíkóskur framherji sem er á láni frá Manchester United og hlakkar eflaust til sumarsins þegar hann flytur að öllum líkindum frá Madríd.

,,Ástandið hérna er pirrandi. Ég legg mikið á mig og gef allt í æfingarnar en þegar það kemur að velja í byrjunarliðið á ég nánast engan séns," sagði Chicharito í einlægu myndbandi.

,,Ég er partur af frábæru liði en ég er ekki talinn nægilega mikilvægur. Stundum missi ég sjálfstraustið til skamms tíma þó ég reyni að gera það ekki.

,,Ég er búinn að vera mjög pirraður og svekktur. Það versta væri að missa sjálfstraustið alveg, ég þarf fleiri tækifæri til að sanna hvað ég get gert á vellinum."



Athugasemdir
banner
banner