Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 30. mars 2015 12:00
Alexander Freyr Tamimi
Henderson ætlar að skrifa undir nýjan samning á Anfield
Henderson kann vel við sig hjá Liverpool.
Henderson kann vel við sig hjá Liverpool.
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, miðjumaður Liverpool, hyggst skrifa undir nýjan samning við félagið og hefur hann í hyggju að spila á Anfield í mörg ár til viðbótar.

Enski landsliðsmaðurinn á bara rúmt ár eftir af núgildandi samningi sínum en er ekki mikið að stressa sig. Hann hefur borið fyrirliðabandið í fjarveru Steven Gerrard á tímabilinu.

,,Ég elska að spila fyrir Liverpool og stefni á að vera hérna í mörg ár til viðbótar," sagði Henderson.

,,Hvað varðar samningamál, þá held ég að allir aðrir geri mál úr þessu nema ég. Ég læt bara umboðsmann minn og félagið sjá um þessi mál og þegar þetta er komið, þá er þetta komið. Ég vil bara gera mitt besta fyrir félagið og landsliðið."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner