Varnarmaður fær að spila frammi
Raio Piiroja mun spila kveðjuleik sinn með landsliði Eistlands þegar liðið mætir Íslandi í vináttuleik annað kvöld.
Hinn 35 ára gamli Piiroja á 113 landsleiki að baki en hann er varnarmaður.
Piiroja mun fá að spreyta sig í framlínunni á morgun í kveðjuleik sínum eftir samkomulag sem hann gerði við landsliðsþjálfara Eista.
Piiroja vill ólmur skora í leiknum en á fréttamannafundi í dag sagðist hann ætla að leika eftir fagn sem Stjörnumenn gerðu frægt árið 2010 þar sem Jóhann Laxdal lék lax.

Samkvæmt fréttum frá Eistlandi er Piiroja mikill veiði áhugamaður og því vill hann splæsa í þetta fagn ef hann skorar á morgun. Við vonum samt að hann fái ekki tækifæri til þess!
#Piiroja is CB but tomorrow will play up front after agreement with #EST coach. He has a passion for fishing(see pic) pic.twitter.com/gyj1SfXJsE
— Angelo RdS (@angelorumori) March 30, 2015
Athugasemdir