Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 30. mars 2015 17:30
Magnús Már Einarsson
Liðsfélagar Emils sluppu vel frá árekstri
Panagiotis Tachtsidis.
Panagiotis Tachtsidis.
Mynd: Getty Images
Grísku landsliðsmennirnir Panagiotis Tachtsidis, Vangelis Moras og Ioannis Fetfatzidis sluppu nánast ómeiddir úr bílslysi í Ungverjalandi í morgun.

Leikmennirnir voru í eldlínunni þegar Grikkland mætti Ungveralandi í undankeppni EM um helgina.

Þeir voru í leigubíl á leið á flugvöllinn í Búdapest þegar þeir lentu í árekstri.

Bílstjórinn í hinni bifreiðinni lét lífið en leikmennirnir sluppu ótrúlega vel. Fetfatzidis fékk gat á hausinn og sauma þurfti nokkur spor í hnéð á Tachtsidis.

Moras og Tachtsidis eru báðir liðsfélagar Emils Hallfreðssonar hjá Hellas Verona á Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner