Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 30. mars 2015 23:15
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Alves vildi ekki svara - Byrjaði að syngja í staðinn
Mynd: Getty Images
Dani Alves, hægri bakvörður Barcelona, getur valið milli helstu liða Evrópu þegar hann yfirgefur Börsunga við samningslok í sumar.

Greint hefur verið frá því að Alves sé búinn að skrifa undir samning við frönsku meistarana í PSG þar sem hann myndi ganga til liðs við marga samlanda sína og stórstjörnur á borð við Zlatan Ibrahimovic og Edinson Cavani.

Alves hefur oft sagt að hann vilji ekki tjá sig um málið en fréttamenn á Spáni eru þekktir fyrir að áreita knattspyrnumenn þar til þeir gefa eitthvað svar.

Brasilíski bakvörðurinn var ekki á því að svara, sama hversu oft hann var spurður, svo hann ákvað að taka hljóðnemann af fréttamanninum og byrjaði að syngja, væntanlega sama lag og hann var að hlusta á í heyrnartólunum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner