mán 30. mars 2015 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Osvaldo bauð mótherja sínum að snæða gras
Osvaldo er gríðarlega svalur
Osvaldo er gríðarlega svalur
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Pablo Dani Osvaldo, leikmaður Boca Juniors í Argentínu, er þegar farinn að láta til sín taka en hann er á láni frá Southampton.

Osvaldo samdi við Southampton árið 2013 en gekk illa að finna sig og var lánaður til ítalska stórliðsins Juventus. Hann fór svo aftur frá Southampton á láni síðasta sumar til Inter en átti erfitt uppdráttar og var látinn fara.

Hann er kominn til Boca á láni frá enska liðinu en þessi skrautlegi karakter var í baráttunni við Leandro Desabato, leikmann Estudiantes, allan leikinn.

Eftir eina harða baráttu ákvað þá Osvaldo að bjóða Desabato gras til þess að snæða en óvíst er hvað hann meinti með því.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner