Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 30. mars 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingaleikir: Fylkir gerði jafntefli við U19 ára landsliðið
Valdimar Ingimundarson skoraði fyrir Fylki.
Valdimar Ingimundarson skoraði fyrir Fylki.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fylkir og U19 landsliðið spiluðu æfingaleik á Fylkisvelli á föstudaginn síðasta. Strákarnir í U19 komst yfir í fyrri hálfleik með marki frá Jake Pétur Martin, sem leikur með Strömmen í Noregi. Helgi Guðjónsson úr Fram bætti svo við öðru marki fyrir U-19 í upphafi síðari hálfleiks.

Valdimar Þór Ingimundarson minkaði muninn fyrir Fylki um miðjan síðar hálfleik áður en U19 fékk svo á sig sjálfsmark undir lok leiksins. Lokatölur urðu 2-2.

Í öðrum æfingaleikjum þá vann Hvíti Riddarinn risasigur á Álafossi. Lokatölur urðu 12-2 fyrir Hvíta Riddaranum. Kvennalið Hvíta Riddarans spilaði gegn Álftanesi, en tapaði þar 4-1.

Fylkir 2 - 2 U19 ára landsliðið
0 - 1 Jake Pétur Martin
0 - 2 Helgi Guðjónsson
1 – 2 Valdimar Þór Ingimundarson
2 – 2 Sjálfsmark

Hvíti Riddarinn 12 - 2 Álafoss

Álftanes 4 - 1 Hvíti Riddarinn

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner