FIFA hefur ákveðið að taka sérstaklega fyrir rauða spjaldið sem Neil Taylor, bakvörður Wales, fékk gegn Íra í síðustu viku.
Taylor fótbraut Seamus Coleman, bakvörð Íra, með ljótri tæklingu.
Taylor fékk rauða spjaldið og verður í banni gegn Serbíu í undankeppni HM í júní.
Taylor fótbraut Seamus Coleman, bakvörð Íra, með ljótri tæklingu.
Taylor fékk rauða spjaldið og verður í banni gegn Serbíu í undankeppni HM í júní.
Góðar líkur eru hins vegar á því að FIFA framlengi bannið en í dag var staðfest að rauða spjaldið sé til skoðunar.
Sjá einnig:
Myndband: Tímabilið búið hjá Coleman eftir skelfilega tæklingu
Athugasemdir