Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 30. mars 2017 14:30
Elvar Geir Magnússon
Getur Chicago Fire unnið HM?
Schweinsteiger var tekinn úr jafnvægi.
Schweinsteiger var tekinn úr jafnvægi.
Mynd: Getty Images
Þýski miðjumaðurinn Bastian Schweinsteiger gekk formlega í raðir Chicago Fire í bandarísku MLS-deildinni í gær.

Schweinsteiger kemur til Chicago frá Manchester United, en hann gæti leikið sinn fyrsta leik hjá nýju liði um helgina gegn Montreal Impact.

Schweinsteiger varð heimsmeistari með Þýskalandi 2014 en hann sat fyrir svörum á vandræðalegum fréttamannafundi í gær.

Þar fékk hann meðal annars spurningu sem tók hann algjörlega úr sambandi. Hann var spurður að því hvort hann gæti hjálpað Chicago að vinna HM.

Sérstaklega áhugavert þar sem HM er aðeins fyrir landslið...


Athugasemdir
banner
banner
banner