Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. mars 2017 17:32
Elvar Geir Magnússon
Gísli Eyjólfs með nýjan samning við Breiðablik
Gísli Eyjólfsson.
Gísli Eyjólfsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gísli Eyjólfsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablik en frá þessu er greint á blikar.is.

Gísli sem er 22 ára gamall miðjumaður á að baki 46 leiki með meistaraflokki Breiðabliks og hefur skorað 6 mörk í þessum leikjum.

Hann hóf meistaraflokksferil sinn sem lánsmaður hjá Augnabliki árið 2013. Einnig hefur hann tímabundið farið á láni til Hauka og Víkings Ó. Í fyrra vakti hann athygli þegar vann hann sér fast sæti í Blikaliðinu og var einn af bestu leikmönnum liðsins.

„Það verður gaman að sjá hvernig þessi öflugi leikmaður mun halda áfram að vaxa og dafna á komandi árum," segir á blikar.is.

Gísli skoraði tvö mörk í fimmtán leikjum í Pepsi-deildinni í fyrra en Blikar höfnuðu í sjötta sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner