Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. mars 2017 11:30
Magnús Már Einarsson
Leikmaður Sunderland bjargaði mannslífum
W(h)at a man!
W(h)at a man!
Mynd: Getty Images
Duncan Watmore, kantmaður Sunderland, bjargaði í vikunni lífi þriggja aðila eftir slys á Barbados.

Watmore var á hraðbát ásamt kærustu sinni þegar hann lenti í hörku árekstri við annan bát.

Hinn 23 ára gamli Watmore bjargaði þremur aðilum úr vatninu áður en björgunaraðilar komu á svæðið.

„Þetta var spurning um líf eða dauða. Ég er heppinn að koma ekki til baka í líkkistu," sagði einn af þeim aðilum sem Watmore bjargaði.

Watmore hjálpaði björgunaraðilum einnig á slysstað en hann notaði meðal annars stuttermabol sinn til að stöðva blæðingu hjá einum af þeim sem lenti í slysinu.

Watmore sleit krossband í hné í desember og kemur því ekki meira við sögu á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner