Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 30. mars 2017 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Osman: Everton mun ná því besta út úr Lukaku
Lukaku er mikill markaskorari.
Lukaku er mikill markaskorari.
Mynd: Getty Images
Leon Osman telur að Everton sé besti staðurinn fyrir sóknarmanninn Romelu Lukaku, vilji hann halda áfram að þróast sem leikmaður.

Hinn 23 ára gamli Lukaku vill ekki skrifa undir nýjan samning við Everton og mörg af stærstu félögum Evrópu bíða spennt.

Osman, sem er fyrrum leikmaður Everton, telur þó að það muni ekki hjálpa Lukaku að fara frá Everton. Ef hann vilji halda áfram að þróast sem leikmaður þá verði hann áfram í herbúðum félagsins.

„Hann mun einn daginn spila fyrir eitt af bestu liðum Evrópu. Ég er þó ekki viss um að hann þurfi að gera það núna strax," sagði Osman við Sky Sports.

„Everton mun ná því besta út úr Romelu Lukaku og þeir spila þannig að hann skori mörk. Ég er ekki viss um að mörg önnur lið myndu gera það fyrir hann."
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner