Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 30. apríl 2015 17:00
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deildin
Haraldur Freyr: Planið að taka þrjú stig í fyrsta leik
Haraldur segir Keflvíkinga hafa verið að prófa fullt af nýjum hlutum.
Haraldur segir Keflvíkinga hafa verið að prófa fullt af nýjum hlutum.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
„Það er alltaf spenna þegar Pepsi-deildin er að hefjast. Við erum spenntir og brattir," segir Haraldur Freyr Guðmundsson, miðvörður og fyrirliði Keflavíkur. Á sunnudagskvöld mætir Keflavík liði Víkings á heimavelli sínum í fyrstu umferð.

Keflavík er spáð áttunda sæti en Haraldur segir leikmenn liðsins telja sig vera betri en það.

„Ég tel okkur að sjálfsögðu geta gert betur. Úrslitin í Lengjubikarnum hafa ekki verið góð. Við höfum spilað fullt af leikjum ágætlega en verið að prófa fullt af nýjum hlutum. Það er algjörlega nýtt mót að hefjast á sunnudag og við höfum engar áhyggjur."

Guðjón Árni Antoníusson og Hólmar Örn Rúnarsson gengu í raðir Keflavíkur í vetur.

„Það er frábært að fá tvo félaga og góða leikmenn heim aftur. Við bindum miklar vonir við þá og að þeir verði öflugir fyrir okkur i sumar," segir Haraldur en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.

„Við byrjum heima og vonandi eigum við eftir að ná upp góðum leik. Það er planið að ná í þrjú stig í fyrsta leik."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner