Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 30. apríl 2016 18:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Benítez: Þessi sigur gefur okkur mikið
Rafa tekur hér í spaðann á Andros Townsend
Rafa tekur hér í spaðann á Andros Townsend
Mynd: Getty Images
Rafa Benítez, stjóri Newcastle var skiljanlega ánægður eftir kærkominn sigur gegn Crystal Palace í dag.

Andros Townsend gerði eina mark leiksins snemma í síðari hálfleik, en Newcastle komst upp úr fallsæti með sigrinum.

„Við verðum ennþá að spila aðra tvo leiki. Við munum njóta þessarar helgi vegna þess að við unnum og svo munum við fara að einbeita okkur að leiknum gegn Aston Villa því það verður erfiður leikur,“ sagði Benítez eftir sigurinn.

„Þessi sigur gefur okkur mikið, en vonandi getum við gert það sama gegn Tottenham þegar við getum forðast fall og allir verða ánægðir.“

Andros Townsend gerði sigurmark Newcastle beint úr aukaspyrnu og þá varði Karl Darlow vítaspyrnu frá Yohan Cabaye. Það var Benítez ánægður með.

„Aukaspyrnan var frábær og vítaspyrnuvarslan, ég var mjög ánægður fyrir þeirra hönd. Vonandi þarf Karl (Darlow) ekki að verja meira til loka tímabils.“

„Ég veit að þetta verður erfitt, en við munum gera okkar besta til að vinna. Við verðum að hafa trú,“
sagði Benítez að lokum.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner