Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. apríl 2016 18:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Welbeck hetja Arsenal gegn Norwich
Welbeck skoraði sigurmark Arsenal
Welbeck skoraði sigurmark Arsenal
Mynd: Getty Images
Arsenal 1 - 0 Norwich
1-0 Danny Welbeck ('59 )

Lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni var að ljúka, en Arsenal og Norwich áttust við á Emirates.

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik, en þegar korter var búið af seinni hálfleiknum skoraði Danny Welbeck og kom Arsenal yfir.

Það reyndist eina mark leiksins og 1-0 sigur Arsenal staðreynd, en fyrir leikinn var Arsenal í fjórða sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Manchester City sem á einn leik til góða.

Sigur Arsenal í dag þýðir að liðið fari í þriðja sæti deildarinnar með þremur stigum meira en City, sem mætir Southampton á morgun. Útlitið er hins vegar ekki gott fyrir Norwich sem er í næst neðsta sæti með 31 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner