Útvarpsmaðurinn góðkunni, Ívar Guðmundsson, var á skotskónum í fyrstu umferð Borgunarbikarsins í dag.
Ívar spilaði frammi með utandeildarliði Gnúpverja sem heimsótti Hvíta Riddarann á Tungubökkum í Mosfellsbæ.
Ívar spilaði frammi með utandeildarliði Gnúpverja sem heimsótti Hvíta Riddarann á Tungubökkum í Mosfellsbæ.
Ívar, sem fagnaði fimmtugs afmæli sínu á dögunum, kom Gnúpverjum yfir með marki úr vítaspynu í fyrri hálfleiknum.
Það dugði þó ekki til því að Hvíti Riddarinn náði að snúa taflinu sér í hag og máta Gnúpverja 6-2.
Ívar átti einnig stóran þátt í öðru marki Gnúpverja í leiknum en hann átti þá skot í varnarmann Hvíta Riddarans og inn.
Ívar spilaði meðal annars með Haukum á sínum tíma en hann lék síðast í bikarnum með liði Þórs frá Þorlákshöfn árið 2012.
Ívar Guðmunds að koma Gnúpverjum í 1-0 á móti Hvíta Riddaranum í bikarnum.
— Gunnar Birgisson (@grjotze) April 30, 2016
@GummiBen Að sjálfsögðu! Enda stemmingin í Hámarki.
— Gunnar Birgisson (@grjotze) April 30, 2016
Athugasemdir