lau 30. apríl 2016 19:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Noregur: Gunnhildur Yrsa óheppin í tapi
Gunnhildur Yrsa varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark
Gunnhildur Yrsa varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lilleström 2 - 0 Stabæk
1-0 Sherida Spitze ('36 )
2-0 Sjálfsmark ('72 )

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar lið hennar Stabæk fór í heimsókn til Lilleström.

Þetta var toppslagur í norsku efstu deildinni, en fyrir leikinn munaði aðeins einu stigi á liðunum í efstu tveimur sætunum.

Sherida Spitze kom Lilleström yfir og staðan í hálfleik var 1-0. Gunnhildur, sem lék allan leikinn fyrir Stabæk, varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Þar við sat og 2-0 sigur Lilleström á Stabæk staðreynd. Nú muna fjórum stigum á liðunum í norsku efstu deildinni, en Stabæk á þó leik til góða á Lilleström.
Athugasemdir
banner
banner
banner