Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 30. apríl 2016 14:37
Elvar Geir Magnússon
Rúrik spilaði klukkutíma - Kolbeinn enn meiddur
Rúrik í landsleik.
Rúrik í landsleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúrik Gíslason var í byrjunarliði þýska liðsins Nürnberg sem tapaði 3-1 fyrir Braunschweig í B-deildinni í dag.

Rúrik hefur jafnað sig af erfiðum meiðslum og hefur verið í byrjunarliði Nürnberg síðustu tvo leiki.

Rúrik lék fyrsta klukkutímann en Nürnberg er á leið í umspil um sæti í efstu deild.

Kolbeinn er enn á meiðslalista Nantes og var ekki í leikmannahópi liðsins þegar það vann 1-0 sigur gegn Nice. Ekkert hefur verið gefið upp um hvenær Kolbeinn snýr aftur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner