Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 30. apríl 2016 16:09
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Bale bjargaði Real á ögurstundu
Mynd: Getty Images
Real Sociedad 0 - 1 Real Madrid
0-1 Gareth Bale ('80)

Gareth Bale gerði eina mark leiksins er Real Madrid marði Real Sociedad í fyrsta leik dagsins í spænska boltanum.

Staðan var markalaus í 80 mínútur og þegar Madrídingar voru byrjaðir að efast um áframhaldandi þátttöku í titilbaráttunni skoraði velski kantmaðurinn.

Real er því á toppi deildarinnar með tveggja stiga forystu á Barcelona og Atletico Madrid sem eiga bæði eftir að spila í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner