Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. apríl 2016 16:48
Ívan Guðjón Baldursson
Townsend: Voru byrjaðir að sóa tíma á fyrstu mínútu
Townsend skoraði eina mark leiksins. Þetta var hans þriðja mark í ellefu leikjum fyrir Newcastle frá komu sinni í janúar.
Townsend skoraði eina mark leiksins. Þetta var hans þriðja mark í ellefu leikjum fyrir Newcastle frá komu sinni í janúar.
Mynd: Getty Images
Andros Townsend, kantmaður Newcastle, gerði eina mark leiksins í mikilvægum sigri á Crystal Palace í dag. Markið var afar laglegt og kom beint úr aukaspyrnu.

Newcastle er komið upp úr fallsæti í fyrsta sinn í langan tíma. Félagið er einu stigi fyrir ofan Sunderland og tveimur fyrir ofan Norwich, Sunderland á einn leik til góða og Norwich tvo.

„Ég ætlaði að skjóta hinu megin við vegginn en þeir eru með svo stóra leikmenn að ég ákvað að snúa honum til vinstri frekar. Það virkaði fullkomlega," sagði Townsend um aukaspyrnuna sína.

„Þetta gætu verið gríðarlega mikilvæg þrjú stig og ég er mjög ánægður með að hafa skorað þetta mark. Vonandi mun ég skora fleiri mörk í næstu leikjum.

„Palace mætti í þennan leik til að reyna að fella okkur. Þeir voru byrjaðir að sóa tíma strax á fyrstu mínútu. Sunderland tapaði stigum sem er eins og annar sigur fyrir okkur, nú þurfum við að leggja allt púður í leikinn gegn Villa."

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner