lau 30. apríl 2016 07:15
Elvar Geir Magnússon
Vilhjálmur Alvar dæmir opnunarleikinn
Vilhjálmur Alvar dæmir fyrsta leik sumarsins.
Vilhjálmur Alvar dæmir fyrsta leik sumarsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einn af yngri dómurum Pepsi-deildarinnar fær það verkefni að dæma sjálfan opnunarleikinn þegar Íslandsmeistarar FH heimsækja Þrótt í Laugardalnum klukkan 16 á morgun, sunnudag.

Gylfi Már Sigurðsson og Oddur Helgi Guðmundsson verða aðstoðardómarar.

ÍBV og ÍA mætast klukkan 17 í Vestmannaeyjum en þar verður lögregluvarðstjórinn Pétur Guðmundsson dómari.

Ívar Orri Kristjánsson dæmir leik Breiðabliks og Víkings frá Ólafsvík sem er 19.15.

Þá mun fasteignasalinn Guðmundur Ársæll Guðmundsson dæma leik Vals og Fjölnis sem verður klukkan 20:00.

sunnudagur 1. maí
16:00 Þróttur R.-FH (Þróttarvöllur)
17:00 ÍBV-ÍA (Hásteinsvöllur)
19:15 Breiðablik-Víkingur Ó. (Kópavogsvöllur)
20:00 Valur-Fjölnir (Valsvöllur)

mánudagur 2. maí>
19:15 Stjarnan-Fylkir (Samsung völlurinn)
19:15 KR-Víkingur R. (Alvogenvöllurinn)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner