Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. maí 2015 08:30
Stefán Haukur
Rooney: Þurftum að ná topp 4
Rooney er lykilmaður hjá United.
Rooney er lykilmaður hjá United.
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney segir í viðtali við heimasíðu Manchester United að liðið hafi þurft að ná einu af efstu fjórum sætunum til að halda stolti sínu.

„Við þurftum að komast aftur í Meistaradeildina og okkur tókst það. Vonandi er þetta stökkpallurinn að einhverju meira og stærra.“

Rooney var gerður að fyrirliða þegar Louis van Gaal kom til félagsins og hefur hann staðið prýðilega undir þeim væntingum sem eru gerðar til fyrirliða.

„Hann hafði trú á mér og gerði mig að fyrirliða. Það er augljóst af hverju hann er svona sigursæll þegar þú sérð hvernig hann vinnur og hvernig hann þjálfar,“ bætti Rooney við.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner