Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mán 30. maí 2016 22:07
Arnar Ingi Ingason
Floridana-vellinum
Albert Brynjar: Menn eru mjög svekktir inni í klefa
Albert var á skotskónum í dag.
Albert var á skotskónum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er fáránlegt að við höfum ekki náð okkar fyrsta sigri í þessum leik í dag.“ sagði Albert Brynjar Ingason, leikmaður Fylkis, eftir svekkjandi jafntefli við Fjölni í Pepsi deildinni í kvöld. Albert skoraði annað af tveimur mörkum Fylkis í kvöld en það var þriðja mark hans í deildinni.

„Við fáum á okkur mark úr föstu leikatriði sem hefur gerst í öllum leikjunum í sumar. En munurinn í dag er hvernig við brugðumst við því, við sýndum mikinn karakter og stjórnuðum þessum leik alveg frá A-Ö.“

Hópfundur eftir leikinn gegn ÍBV
Við erum farnir að sýna okkar rétta andlit. Eftir leikinn á móti ÍBV þá hópuðum við okkur saman og núllstilltum okkur sem lið. Síðustu þrír leikir hafa verið góðir. Okkur finnst að við hefðum átt að vinna uppi á Skaga, fínn bikarsigur og svo leikurinn í dag.“

Sigurinn að fara að detta inn
„Það er gríðarlega svekkjandi að hafa ekki fengið sigur úr þessu í dag en við getum tekið svo margt úr þessum leik og ef við spilum eins og við gerðum í dag þá er sigurinn að fara að detta inn hjá okkur.“
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner