Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 30. maí 2016 07:30
Arnar Geir Halldórsson
Bartra falur fyrir átta milljónir evra
Marc Bartra
Marc Bartra
Mynd: Getty Images
Marc Bartra mun að öllum líkindum yfirgefa Barcelona í sumar eftir að hafa fengið fá tækifæri í byrjunarliðinu á nýafstaðinni leiktíð.

Samningur Bartra við Börsunga rennur út næsta sumar en riftunarákvæði samningsins er komið niður í átta milljónir evra vegna þess hve fáa leiki hann spilaði með Barcelona í vetur.

Þrátt fyrir að hafa aðeins leikið 13 deildarleiki í spænsku úrvalsdeildinni í vetur er Bartra í landsliðshópi Spánverja á EM í Frakklandi.

Bartra er 25 ára gamall og hefur leikið með Barcelona allan sinn feril.

Athugasemdir
banner
banner
banner